Sæþór TH 56 á Sjóminjasafninu á Húsavík / Menningarmiðstöð Þingeyinga. Opinn vélbátur, trilla Smíðaður 1944 af jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík Brúttórúmlestir: 1,62 Lengd: 6,6 m / Breidd: 1,8 m / Dýpt: 0,8 m Smíðaefni og samsetning skrokks: Eik og fura, súðbyrtur
Báturinn var smíðaður fyrir Gísla Friðbjarnarson sjómann, Skuld, Húsavík. Hann réri á honum frá Húsavík fyrsta áratuginn. 1955 var hann seldur austur í Leirhöfn á Melrakkasléttu og var þar síðan eða í aldarfjórðung, nefndist þá Hafþór. Kaupendur bátsins voru Árni Pétur Lund, bóndi í Miðtúni í Leirhafnarlandi, og mágar hans. Báturinn reyndist mjög vel. Hann var notaður til grásleppuveiða og einnig var honum oft róið til fiskjar á miðin við Rauðanúp. Árni Pétur stundaði grásleppuveiðar ásamt búskap. Hann gaf bátinn Byggðasafni Þingeyinga.
Upplýsingar um bátinn fengnar héðan: http://batasmidi.is/files/
Comments